Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Orku­búið auglýsir samfé­lags­styrki 2018

Orkubú Vest­fjarða vill með samfé­lags­styrkj­unum sýna stuðning í verki við þá aðila og félög sem sinna ýmsum samfé­lags­málum á Vest­fjörðum.  Þar getur verið um að ræða ýmis­konar starf­semi eða félaga­samtök, s.s. björg­un­ar­sveitir, íþrótta- og æsku­lýðs­starf, menn­ing­ar­starf­semi og listir eða einhver önnur áhuga­verð verk­efni sem skipta máli fyrir vest­firskt samfélag.


Skrifað: 10. desember 2018

Auglýsingar

Rétt er að minna á að leitast verður við að styrkja verkefni vítt og breitt um Vestfirði.

Verkefnin þurfa að uppfylla þau skilyrði að þau séu til eflingar vestfirsku samfélagi, en að öðru leyti er umsækjendum gefnar nokkuð frjálsar hendur varðandi verkefni.

Miðað er við að einstakar styrkveitingar geti verið á bilinu 50.000 til 500.000,-

Umsóknum skal skilað rafrænt með því að fylla út þetta rafræna eyðublað.

Umsóknarfrestur er til og með 6. janúar 2019.