Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Orkumál á Vest­fjörðum

Orkumál á Vest­fjörðum njóta ákveð­innar sérstöðu og hafa gert um nokkurt skeið.


Skrifað: 15. mars 2022

Auglýsingar

Starfshópur um orkumál á Vestfjörðum, sem starfar í umboði umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, fékk það verkefni að skoða orkumál í fjórðungnum og koma með tillögur til úrbóta. Var við vinnuna litið til stöðu mála í flutningskerfi raforku, dreifikerfi raforku og möguleikum til orkuvinnslu á svæðinu og hvernig það fellur að áherslum úr orkustefnu um orkuskipti og afhendingaröryggi á landsvísu.

Starfshópurinn hefur nú unnið drög að tillögum til úrbóta og vill ræða drögin við íbúa Vestfjarða áður en hann lýkur störfum.

Fundirnir eru:
20.mars, sunnudagur – Félagsheimilið á Patreksfirði kl: 17:00
21.mars, mánudagur – Félagsheimilið á Bolungarvík kl: 20:00
22. mars, þriðjudagur – Félagsheimilið á Hólmavík kl: 18:00