Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Patreks­fjörður – Bílstjóri í sumarstarf

Póst­urinn leitar að kraft­miklum og ábyrgð­ar­fullum bílstjóra við afleys­ingar í sumar á Patreks­firði.


Skrifað: 26. febrúar 2021

Starfsauglýsingar

Starfið er fjölbreytt og felst m.a. í vinnslu, útkeyrslu, útburði og öðrum tilfallandi verkefnum. Um er að ræða fullt sumarstarf með möguleika á framtíðarstarfi. Vinnutíminn er frá klukkan 08:15 til 16:30, alla virka daga.

Starfstímabil er frá 1.júní til 31. ágúst 2021.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Bílpróf
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Rík þjónustulund og góð samskiptafærni

Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2021

Sótt er um starfið á umsóknarvef Póstsins, www.posturinn.is/atvinna. Nánari upplýsingar veitir Sigurborg Þórsdóttir, stöðvarstjóri, í netfanginu sigurborgth@postur.is.

Pósturinn er með Jafnlaunavottun og leggur ríka áherslu á samfélagslega ábyrgð.