Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Patreks­höfn - Tiltekt á hafn­arkanti

Nú stendur yfir vinna við undir­búning vegna gáma­svæðis sem afmarkað verður við Patreks­höfn. Ætlunin er að bjóða þeim aðilum sem eiga gáma á svæðinu að leigja svæði undir gáma innan girð­ingar.


Skrifað: 17. maí 2019

Svo þetta sé mögulegt þarf að hreinsa til á hafnarsvæðinu, en svæðið sem um ræðir sést á meðfylgjandi mynd.

Þeir aðilar sem eiga lausamuni á svæðinu eru beðnir að fjarlægja þá eigi síður en 1. júní 2019. Þeir lausamunir sem ekki verður vitjað fyrir fyrrgreindan frest verða fjarlægðir og fargað án frekari fyrirvara.