Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Ráðhús Vest­ur­byggðar – Opið hús

Fimmtu­daginn 6. desember n.k. verður opið hús í nýju Ráðhúsi Vest­ur­byggðar að Aðalstræti 75 á Patreks­firði.

Opnun­ar­há­tíðin mun vera milli kl. 15 og kl. 18 og hvetjum við sem flesta til að mæta og kynna sér starf­semina. Allir velkomnir!


Skrifað: 23. nóvember 2018

Auglýsingar

Á sama tíma verður ný heimasíða Vesturbyggðar formlega opnuð.

Í tilefni af opnuninni verður sett af stað nafnasamkeppni fyrir fundarherbergi hússins, en þau eru þrjú talsins; fundarherbergi bæjarstjórnar, fundarherbergi nefnda og fundarsalur á neðri hæð.

Frestur til að skila inn tillögum er 5. desember á netfang vesturbyggd@vesturbyggd.is eða hjá móttökustjóra í Ráðhúsi Vestubyggðar. Besta tillagan verður kynnt á opnuninni.

Starfsfólk Vesturbyggðar