Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Sérfræð­ingur á kjara­sviði

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga leitar að einstak­lingi í starf sérfræð­ings á kjara­sviði sem hefur til að bera frum­kvæði, hæfni í mann­legum samskiptum, nákvæmni í vinnu­brögðum og getu til að vinna sjálf­stætt og með öðrum að fjöl­breyttum verk­efnum.


Skrifað: 14. mars 2022

Starfsauglýsingar

Staðan er auglýst óháð staðsetningu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast gerð reiknilíkana vegna kostnaðarmats kjarasamninga
  • Hefur umsjón með framkvæmd og úrvinnslu kjararannsókna kjarasviðs
  • Annast sérfræðiráðgjöf um framkvæmd og túlkun kjarasamninga ásamt gerð leiðbeininga til sveitarfélaga vegna launaútreikninga
  • Vinnur með sviðsstjóra og öðrum sérfræðingum kjarasviðs að undirbúningi og gerð kjarasamninga og tekur þátt í kjaraviðræðum
  • Innir af hendi önnur verkefni sem sviðsstjóri eða framkvæmdastjóri felur honum

Hæfnikröfur

  • Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða skyldum greinum sem nýtist í starfi
  • Framhaldsnám er kostur
  • Góð þekking á kjarasamningsumhverfi opinbers vinnumarkaðar
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og er nákvæmur í vinnubrögðum
  • Þekking og áhugi á málefnum sveitarfélaga
  • Hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti

Umsóknarfrestur er til og með 28. mars 2022

Um er að ræða fullt framtíðar starf. Nánari upplýsingar veitir Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs, netfang: inga.run.olafsdottir@samband.is, eða Valur Rafn Halldórsson, sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs, netfang: valur@samband.is eða í síma 515-4900.

Ferilskrá og kynningarbréf, merkt „Umsókn um starf sérfræðings á kjarasviði“, berist eigi síðar en mánudaginn 28. mars nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík, eða í tölvupósti til samband@samband.is.