Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Starfsaug­lýsing - Skóla­stjóri Tálkna­fjarð­ar­skóla

Tálkna­fjarð­ar­hreppur auglýsir stöðu skóla­stjóra Tálkna­fjarð­ar­skóla lausa til umsóknar. Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlist­ar­skóli undir einu þaki. Í skól­anum eru um 50 nemendur.


Skrifað: 22. mars 2019

Starfsauglýsingar

Tálknafjörður er afar fallegur fjörður sem þekktur er fyrir einstaka veðurblíðu. Íbúarnir eru miklir íþróttaálfar og státar þorpið af glæsilegri íþróttamiðstöð með tækjasal, 25m sundlaug og fjöldann allan af skipulögðum íþróttatímum. Atvinnulíf er með miklum blóma og uppbygging fiskeldis og ferðaþjónustu á svæðinu býður upp á mikil tækifæri.

Starfssvið:

  • Að veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
  • Að leiða samstarf nemenda, starfsmanna, heimila og skólasamfélagsins í heild
  • Að stýra og bera ábyrgð á rekstri skólans og daglegri starfsemi

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf leik- og/eða grunnskólakennara
  • Kennslureynsla í grunnskóla er skilyrði
  •  Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og uppeldis- og menntunarfræða eða umtalsverðLau og farsæl reynsla á sviði stjórnunar, rekstrar og þróunarstarfi er skilyrði.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Metnaður, hugmyndaauðgi, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2019

Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra framtíðarsýn í skólamálum, er skapandi og metnaðarfullur. Staðan er laus frá 1. maí 2019. Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Umsókn skal fylgja greinargott yfirlit um nám og störf (ferilskrá), leyfisbréf til kennslu, kynningarbréf og meðmæli. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um starfið.

Upplýsingar um starfið veitir Bryndís Sigurðardóttir, sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps, í síma 450-2500 eða í gegnum netfangið sveitarstjori@talknafjordur.is.

Umsóknum skal skilað til sveitarstjóra Tálknafjarðarhrepps á netfangið  sveitarstjori@talknafjordur.is