Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Starfs­maður - Tjarn­ar­brekka

Starfs­maður óskast á leik­skólann Tjarn­ar­brekku, Bíldudal

Viltu vera hluti af metn­að­ar­ullum starfs­manna­hópi þar sem skap­andi og fjöl­breyttir kennslu­hættir eru í fyrir­rúmi? Bíldu­dals­skóli er samrekinn leik- og grunn­skóli með tvær starfs­stöðvar á Bíldudal, Vest­ur­byggð; Bíldu­dals­skóla og leik­skólann Tjarn­ar­brekku.

Einkunn­arorð skólans eru: samskipti – samvinna – sköpun


Skrifað: 3. apríl 2023

Starfsauglýsingar

Leikskólinn Tjarnarbrekka leitar að áhugasömum og fjölhæfum starfsmanni í 50 -60% starf frá  og með 12. ágúst 2023, einnig kemur til greina afleysing eftir þörfum. Óskað er eftir starfsmanni sem hefur áhuga á að taka þátt í gróskumiklu leikskólastarfi þar sem faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina og grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfinu.

Við lítum á leikinn sem náms- og þroskaleið barnsins svo við gefum honum góðan tíma og nægt rými til að þróast. Við nýtum okkur Lubba til að efla málþroskann og Vináttu/Blæ til að efla félagsþroskann og er þekking á þeim kostur í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leik- og grunnskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leik- og grunnskóla og menntastefnu Vesturbyggðar
  • Vinna að uppeldi og menntun barnanna
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra
  • Taka þátt í dagskipulagi leikskólans sem felur í sér umsjón með matartíma, útiveru, ýmsa leiki og skapandi verkefni fyrir börnin undir stjórn deildarstjóra eða leikskólastjóra ásamt undirbúningi og frágangi er snýr að morgunmat, kaffitíma og matartíma

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af svipuðu starfi æskileg
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi
  • Snyrtimennska og nákvæmni í vinnubrögðum ( ofnæmi barna)
  • Er stundvís og þolinmóður
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Hreint sakavottorð

Hæfnikröfur

  • Hefur reynslu og áhuga á að starfa með börnum á leik- og grunnskólastigi
  • Er lipur í samskiptum, sýnir jákvæðni og sveigjanleika í starfi
  • Hefur faglegan metnað
  • Sýnir frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Býr yfir færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum

Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2023

Frekari upplýsingar um starfið gefur Elsa Ísfold Arnórsdóttir, skólastjóri/leikskólastjóri.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Tjarnarbrekka leikskólastjóri

LRR

Lilja Rut Rúnarsdóttir liljarut@vesturbyggd.is / 450 2333