Starfsmenn í sjóeldisdeild Arctic Fish
Arctic Fish óskar eftir að ráða fleiri starfsmenn í sjóeldisdeild, í ört stækkandi fiskeldi okkar á Vestfjörðum. Laus til umsóknar eru störf við eldissvæðin á Patreks- og Tálknafirði annars vegar og Dýrafirði hins vegar.
Skrifað: 26. febrúar 2021
Starfsmenn í sjóeldisdeild heyra undir stöðvarstjóra viðkomandi starfsstöðvar og vinna í hóp að daglegum verkefnum við sjóeldið á kvíunum. Starfið er fjölbreytt en helstu verkefni eru fóðrun, eftirlit og umsjón með framleiðslunni sem og viðhald á búnaði og tækjum.
Unnið er á sjö daga vöktum, þ.e unnið er í 7 daga og svo frí í 7 daga, en viðkomandi þarf að vera tilbúin(n) til að vinna sveigjanlegan vinnutíma.
Leitað er að einstaklingi með eftirfarandi réttindi og hæfni
- Frumkvæði og metnaður til að skila góðu starfi
- Stundvísi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Skipstjórnar- og/eða vélstjórnar réttindi
- Reynsla af fiskeldi er kostur en ekki krafa
- Áhugi á fiskeldi
- Skilningur og áhugi á mikilvægi sjálfbærni í fiskeldi bæði er viðkemur samfélagi, umhverfi og fjármagni
Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2021
Við getum boðið upp á samkeppnishæf laun og flutningsstyrk ef þörf er á. Frekari upplýsingar veita: Bernharður Guðmundsson, stöðvarstjóri Dýrafjarðar, 848 6039 eða Ísak Óskarsson, stöðvarstjóri Patreks- og Tálknafjarðar, 846 7949
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um. Umsóknir skulu berast í tölvupósti til Kristínar Hálfdánsdóttur kh@afish.is. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf.