Stuðningsaðili á Bíldudal
Félagsþjónusta Vestur- Barðastrandasýslu auglýsir eftir stuðningsaðila fyrir ungan dreng á Bíldudal. Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
Skrifað: 2. desember 2019
Starfið felur í sér félagslegan stuðning sem er aðlagaður að þörfum og áhugasviði barnsins. Um er að ræða hlutastarf, 2-3 klst í viku og er því tilvalið sem starf með námi eða aukavinna.
Starfið er gefandi og skemmtilegt!
Nánari upplýsingar veitir Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir, ráðgjafi félagsþjónustunnar í síma 450-2300 eða á svanhvit@vesturbyggd.is.