Hoppa yfir valmynd
  • Þjónusta
  • Mannlíf
  • Stjórnsýsla
  • Íbúagátt
    • English
    • Polski
  • Leit
  • Íbúagátt
  • English
  • Polski
  1. Stjórnsýsla
  2. Útgáfa & auglýsingar
  3. Fréttir og tilkynningar

Þrjú störf án stað­setn­ingar

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga auglýsir nú laus til umsóknar þrjú störf án stað­setn­ingar. Um er að ræða tvö störf er snúa að staf­rænni umbreyt­ingu sveit­ar­fé­laga og starf forvarn­ar­full­trúa sveit­ar­fé­laga.


Skrifað: 23. febrúar 2021

Starfsauglýsingar

Spennandi störf í þágu stafrænnar umbreytingar sveitarfélaga

Samband íslenskra sveitarfélaga leitar að tveimur framsýnum og metnaðarfullum verkefnastjórum til að starfa í nýju stafrænu teymi sveitarfélaganna á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Teymið mun vinna að framkvæmd sameiginlegra verkefna á sviði stafrænna umbreytinga. Annars vegar með áherslu á verkefnisstjórnun vegna þróunar sameiginlegrar þjónustulausna og þekkingarvefs og hins vegar vegna mótunar tæknistefnu og tæknistrúktúrs.

Um er að ræða störf til tveggja ára og verður teymið leitt af leiðtoga stafræna teymisins. Þeir sem ráðnir verða þurfa að hafa skýra sýn á þau tækifæri sem stafræn umbreyting felur í sér, frumkvæði, kraft og metnað til að hrinda breytingum í framkvæmd með góðum árangri. Þeir þurfa að búa yfir góðum samskipta- og samstarfshæfileikum, getu til að taka ákvarðanir og breiðri þekkingu sem nýtist í starfi.

Umsóknarfrestur er til 28. febrúar – Nánari upplýsingar um störfin.

Brennur þú fyrir forvörnum?

Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir stöðu forvarnafulltrúa sem mun vinna að því að styðja við framkvæmd aðgerðaáætlunar 2021-2025 um skipulagðar forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni.

Leitað er að drífandi leiðtoga sem brennur fyrir málefninu og hefur til að bera frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum, framúrskarandi hæfni í samskiptum, getu til að miðla efni í ræðu og riti, nákvæmni í vinnubrögðum og skipulagshæfileika. Þá krefst starfið þverfaglegs samstarfs og teymisvinnu.

Um er að ræða tímabundið starf til tveggja ára með möguleika á framlengingu.

Umsóknarfrestur er til 15. mars – Nánari upplýsingar um starfið.


Vesturbyggð

Ráðhús Aðalstræti 75, Patreksfjörður

+354 450 2300 vesturbyggd@vesturbyggd.is kt. 510694 2369


2018 & 2019 Opinberi vefur ársins

2018 Vefur ársins

2020 Jafnlaunavottun