Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Tillaga að breyt­ingu á starfs­leyfi Arnarlax

Umhverf­is­stofnun hefur unnið tillögu að breyt­ingu á starfs­leyfi Arnarlax ehf. í Patreks- og Tálkna­firði.


Skrifað: 19. apríl 2021

Auglýsingar

Um er að ræða breytingu á grein 3.4 sem snýr að heimild til notkunar á eldisótum með ásætuvörnum sem innihalda koparoxíð. Breytingin tekur mið af niðurstöðu Skipulagsstofnunar um matsskyldu sem birt var þann 14. janúar 2021. Einnig hafa tilvísanir í lög og reglugerðir verið uppfærð en allar breytingar eru settar í hornklofa í auglýstri tillögu.

Athugasemdir við breytinguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merktar UST202009-285. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 17. maí 2021. Innsendar athugasemdir verða birtar við útgáfu starfsleyfis nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.