Tímabundin lokun Þórsgötu
Vegna framkvæmda við ræsi undir Þórsgötu þarf að loka fyrir umferð um þá götu við smábátahöfnina á Patreksfirði, þriðjudaginn 26. apríl og miðvikudaginn 27. apríl.
Skrifað: 22. apríl 2022
Þar sem stutt er í að strandveiðar hefjist og uppsátur smábáta á Patreksfirði er staðsett innan við lokunarsvæði, eru bátaeigendur sem ætla að sjósetja báta fljótlega eindregið hvattir til að sjósetja báta fyrir þann tíma, eða koma þeim á svæði nærri svæði til sjósetningar, sjá mynd.
Íbúum við Mýrargötu, Hóla og öðrum þeim sem þurfa um svæðið að fara er bent á að fara um Urðargötu.
Vonir standa til að framkvæmdum ljúki fljótt og að umferð verði hleypt um götuna sem fyrst.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem skapast geta vegna þessara framkvæmda.