Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Píanó­kennari / tónlist­ar­kennari óskast

Tónlist­ar­skóli Vest­ur­byggðar auglýsir eftir tónlist­ar­kennara til að kenna á píanó og mögu­lega fleiri greinar. Fullt starf er í boði eða eins og viðkom­andi hentar.


Skrifað: 12. júní 2023

Starfsauglýsingar

Tónlistarskóli Vesturbyggðar er vaxandi og vel útbúinn skóli, staðsettur í grunnskólanum á Patreksfirði og á Bíldudal. Vesturbyggð er sveitarfélag í örum vexti og um 70 nemendur eru í Tónlistarskólanum auk forskóla. Við skólann starfar lítill en öflugur kennarahópur sem leggur áherslu á samspil af ýmsu tagi, fjölbreytni og framþróun í kennsluháttum.  

Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi sem sýnir frumkvæði og sveigjanleika í starfi.  

 

Helsu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla á píanó
  • Meðleikur á píanó
  • Möguleiki á kennslu á önnur hljóðfæri
  • Möguleiki á kennslu í tónfræðigreinum

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf í tónlist æskilegt eða tónlistarnám sem nýtist í starfi
  • Reynsla af kennslustörfum og meðleik æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2023

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags (FT eða FÍH).

Umsókn berist til Tónlistarskóla Vesturbyggðar í tölvupósti á netfanginu tonlistarskoli@vesturbyggd.is. 

Umsókn skal fylgja ferilskrá þar sem fram kemur menntun og starfsferill og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar. Ábending um meðmælendur er æskileg. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Mjöll Jakobsdóttir skólastjóri.