Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Ungmennaráð Vesturbyggðar
Vesturbyggð auglýsir eftir áhugasömum og kraftmiklum ungmennum á aldrinum 13-25 ára til starfa í Ungmennaráði Vesturbyggðar. Ungmennaráð er ráðgefandi um málefni ungs fólks í sveitarfélaginu.
Skrifað: 16. janúar 2019
Markmið ráðsins er meðal annars:
- Að skapa vettvang til að gera ungu fólki kleift að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila.
- Að vera bæjarstjórn til ráðgjafar um málefni ungs fólks og geri tillögur til bæjarstjórnar um stefnumörkun um málefni ungs fólks.
- Að veita fulltrúum í ráðunum, fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum.
Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá íþrótta- og tómstundafulltrúa Vesturbyggðar.