Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Verk­efna­stjóri miðl­unar

Vest­fjarða­stofa óskar eftir að ráða fjöl­hæfan og lausnamið­aðan verk­efna­stjóra miðl­unar.


Skrifað: 27. apríl 2023

Starfsauglýsingar

Um nýtt og spennandi verkefni er að ræða sem felur í sér fjölbreytt samskipti og samstarf. Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á að miðla upplýsingum um sókn Vestfirskra fyrirtækja og samfélaga.

Vestfjarðastofa er sjálfseignastofnun sem vinnur að hagsmunamálum íbúa, sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja á Vestfjörðum og ráðgjöf og
þjónustu tengda atvinnu- og byggðaþróun, frumkvöðlastarfsemi og menningu í víðum skilningi. Markmið Vestfjarðastofu er að efla atvinnulíf á Vestfjörðum, stuðla að velferð íbúa og styrkja Vestfirði sem búsetukost og áfangastað ferðamanna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með útgáfu og upplýsingamálum Vestfjarðastofu
  • Styðja við miðlun fyrirtækja á Vestfjörðum
  • Samskipti við ytri aðila s.s. fjölmiðla, sveitarfélög og hagaðila
  • Öflun, greining og framsetning upplýsinga um Vestfirði
  • Þátttaka í teymum og verkefnishópum á vegum Vestfjarðastofu
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Brennandi áhugi á atvinnu- og byggðamálum Vestfjarða
  • Reynsla af umsjón með vefjum og samfélagsmiðlum
  • Framúrskarandi hæfni í textagerð á íslensku og ensku
  • Hugmyndaauðgi og drifkraftur
  • Reynsla af verkefnastjórnun og teymisvinnu kostur

Fríðindi í starfi

  • Sveigjanlegur vinnutími

Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2023

Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Búseta á Vestfjörðum er skilyrði og mun starfsstöð taka mið af búsetu viðkomandi.
Starfsstöðvar Vestfjarðastofu eru á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík.

Umsóknum um störfin þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Nánari upplýsingar ásamt því að taka við umsóknum gefur Sigríði Ó. Kristjánsdóttur, framkvæmdastjóra Vestfjarðastofu á netfanginu: sirry@vestfirdir.is

Senda inn umsókn