Hoppa yfir valmynd

Verk­efna­stjóri - Samband sveit­ar­fé­laga

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga óskar eftir að ráða verk­efn­stjóra.

Starfið felur í sér styrkja­sókn í þágu íslenskra sveit­ar­fé­laga í evrópska sjóði á sviði umhverfis-, lofts­lags og staf­rænna mála. Starfið snýst um að þróa verk­efna­hug­myndir, finna samstarfs­aðila innan­lands og utan og sækja um styrki til að fjár­magna verk­efni á þessum sviðum. Starfið felur einnig í sér að fylgja eftir verk­efnum sem verða styrkt.


Skrifað: 23. febrúar 2023

Starfsauglýsingar

Starfið er án fastrar starfsstöðvar og felur í sér náið samstarf við Rannís, sveitarfélög, landshlutasamtök sveitarfélaga og atvinnuþróunarfélög. Sambandið er framsækinn og skemmtilegur vinnustaður sem býður upp á opið vinnuumhverfi, samheldinn hóp og skapar starfsfólki gott svigrúm til starfsþróunar. Sambandið er heilsueflandi og mannauðshugsandi vinnustaður sem leggur áherslu á fjölskylduvænt umhverfi. Jafnræðis skal gætt í hvívetna við ráðningu og leitast er við að mannauður sambandsins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Föst starfsaðstaða getur verið utan höfuðborgarsvæðisins, að þeirri forsendu uppfylltri að mögulegt verði að tryggja fullnægjandi starfsaðstöðu nærri heimili umsækjanda.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á sjóðum Evrópusambandsins
  • Reynsla af skrifum umsókna og rekstri verkefna sem styrkt hafa verið af Evrópusambandinu
  • Þekking á íslenskri stjórnsýslu og hlutverki sveitarfélaga
  • Reynsla af verkefnastjórnun
  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði tal- og ritmáli
  • Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði og veita góða þjónustu

Nánari upplýsingar um starfið veitir:

Valur Rafn Halldórsson sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs sambandsins (valur@samband.is) og Óttar Freyr Gíslason, forstöðumaður Evrópuskrifstofu sambandsins (ottarfreyr@samband.is).

Umsókn skal fylgja ferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf, þar sem fram kemur m.a. rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Sótt er um starfið á  www.alfred.is