Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Umsjón­ar­aðili fyrir Gömlu smiðjuna á Bíldudal

Auglýst er eftir umsjón­ar­aðila sem mun halda utan um komur gesta í smiðjuna og veita þeim upplýs­ingar og leið­sögn, gæta þess að farið sé eftir húsreglum ásamt því að slá og hirða umhverfi smiðj­unnar. Kostur er að umsækj­andi þekki til sögu smiðj­unnar.


Skrifað: 20. apríl 2020

Auglýsingar

Gamla smiðjan á Bíldudal er byggð fyrir aldamótin 1900 af Pétri J. Thorsteinsson. Gamla smiðjan eða járnsmiðjan var fyrsta járn-og málmsmíðaverkstæðið á landinu á þessum tíma og á sér mikla og merkilega sögu sem mikilvægt er að varðveita.

Gamla smiðjan er mikilvægur menningararfur og óendurnýjanleg auðlind í Vesturbyggð. Lögð er áhersla á að viðhalda sögu smiðjunnar, starfsemi hennar og þeirra muna sem þar eru. Fornleifafræðingur vinnur nú að skrásetningu muna í smiðjunni.

Auglýst er eftir umsjónaraðila sem mun halda utan um komur gesta í smiðjuna og veita þeim upplýsingar og leiðsögn, gæta þess að farið sé eftir húsreglum ásamt því að slá og hirða umhverfi smiðjunnar. Kostur er að umsækjandi þekki til sögu smiðjunnar.

Vesturbyggð hvetur umsækjendur einnig til þess að koma með hugmyndir af nýtingu Gömlu smiðjunnar.

Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2020.

Umsóknir skulu berast með tölvupósti til menningar- og ferðamálafulltrúa Vesturbyggðar