Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 1 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Viðhorfs­könnun

Vest­fjarða­stofa vill hvetja alla til að taka þátt í viðhorfs­könn­un­inni sem send var í pósti á alla með lögheimili á Vest­fjörðum um viðhorf þeirra til fisk­eldis og samgöngu­mála en mark­miðið er að fá fram vænt­ingar og viðhorf Vest­firð­inga.


Skrifað: 4. október 2022

Sama könnun var lögð fyrir Vestfirðinga árið 2020 og hafa niðurstöður þeirrar könnunar verið nýttar í hagsmunagæslu fjórðungsins. Til að ná til sem flestra hefur verið farin sú leið að senda bréf til allra og hægt er að fara tvær leiðir til þáttöku. Fara á netslóðina sem fram kemur í bréfinu ásamt lykilorði eða að nota QR kóðann ásamt lykilorði en með þessum hætti er auðvelt að taka þátt í könnuninni.

Til að tryggja jafnræði íbúanna er könnunin á þremur tungumálum; íslensku, ensku og pólsku. Það er rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) sem sér um framkvæmd könnunarinnar fyrir hönd Vestfjarðastofu.

Með könnuninni gefst öllum íbúum Vestfjarða einstakt tækifæri til að láta skoðun sína í ljós á þessum tveimur málaflokkum sem hafa verið í brennidepli undanfarin ár. Niðurstöður verða meðal annars nýttar í stefnumótun sveitarfélaga og svæðisins alls til hagsbóta fyrir íbúana.