Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Vinnu­skóli Vest­ur­byggðar

Vinnu­skóli Vest­ur­byggðar hefst þriðju­daginn 11. júní n.k. bæði á Bíldudal og Patreks­firði. Skrán­ingar hefjast 22. maí og tekið er á móti skrán­ingum til 5. júní.


Skrifað: 22. maí 2019

  • 10. bekkur: 8 vikur, 7 klst. á dag
  • 9. bekkur: 8 vikur,  7 klst. á dag
  • 8. bekkur: 6 vikur, 4 klst á dag
  • 7. bekkur: 4 vikur, 4 klst á dag

Skráningar fara fram á heimasíðu Vesturbyggðar með útfyllingu eyðublaðs. Einnig er hægt að nálgast skráningarblöð til útfyllingar í Ráðhúsi Vesturbyggðar að Aðalstræti 75, Patreksfirði og á skrifstofu fræðslustjóra í Skrímslasetrinu á Bíldudal.

Afhenda þarf útfyllt skráningareyðublað undirritað af foreldri, annars telst skráning ekki gild.