Álagningu fasteignagjalda í Vesturbyggð lokið
Greiðsluseðlar eru ekki sendir út heldur birtast þeir í heimabanka viðkomandi gjaldenda. Einnig eru seðlarnir aðgengilegir á www.island.is undir „mínum síðum" (https://minarsidur.island.is) og skráningu með rafrænu skilríki eða veflykli Ríkisskattsstjóra. Þetta er gert til að draga úr notkun pappírs, flýta útsendingu greiðslutilkynningar og lækka kostnað við innheimtu álagðra gjalda.
Þeir sem óska eftir að fá útprentaða greiðsluseðla eru vinsamlegast beðnir um að snúa sér til bæjarskrifstofu Vesturbyggðar, s. 450 2300.
Alls er lagt á 1.635 eignir og eignahluta, sem eru að mannvirkjamati 4.442 millj.kr. og 427 millj.kr. að lóðarhlutamati eða 4.869 millj.kr. að fasteignamati. Álögð gjöld, sem eru fasteignaskattur, lóðarleiga, vatnsgjald, fráveitugjald og umhverfisgjöld, eru samtals 111,7 millj.kr.
Gjalddagar fasteignagjalda eru átta og er fyrsti gjalddagi 1. febrúar 2012. Elli- og örorkulífeyrisþegar fá afslátt á fasteignaskatti og fráveitugjaldi, en afsláttur er tekjutengdur. Nánar má lesa um álagningarreglur á á heimasíðu sveitarfélagsins á slóðinni:
http://www.vesturbyggd.is/thjonusta/gjaldskrar
Vesturbyggð, 30. janúar 2012,
Bæjarstjóri Vesturbyggðar

