Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Grenja­vinnsla 2024

Vest­ur­byggð auglýsir eftir aðilum til grenja­leitar og grenja­vinnslu í Vest­ur­byggð.


Skrifað: 2. maí 2024

Starfsauglýsingar

Óskað er eftir umsækjendum fyrir fimm svæði, skv. gömlu hreppaskiptingunni.

  1. Rauðasandshreppur
  2. Patrekshreppur
  3. Barðastrandahreppur
  4. Suðurfjarðahreppur
  5. Ketildalahreppur

Til greina kemur að ráða fleiri en einn aðila innan hvers svæðis og skal tekið fram í umsókn um hvaða svæði er sótt. Ákvörðun um ráðningu verður tekin eftir að umsóknarfresti lýkur og miðað er við að umsækjendur hefji störf skv. samkomulagi.

Minnt er á að viðkomandi þarf að hafa gilt skotvopnaleyfi og veiðikort sem framvísa þarf við samning.

Vesturbyggð vekur athygli á því að ráðnir veiðimenn geta einir skilað reikningum og aðeins þeir sem hafa undirritaðan samning við Vesturbyggð fá greitt fyrir refaskott. Reikningum skal skila fyrir 1. september 2024 og verður ekki greitt fyrir grenjavinnslu eftir þann tíma. Skilavottorð frá þjónustumiðstöðvum um fjölda skotta er grundvöllur skilagjalds.

Umsóknarfrestur er til og með 8. maí 2024

Umsóknir skal merkja „Grenjavinnsla 2024“ og er hægt að skila með netpósti á vesturbyggd@vesturbyggd.is eða með bréfpósti

Vesturbyggð

b.t. Sviðstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs.

Aðalstræti 75

450 Patreksfirði

Vesturbyggð vekur athygli á því að ráðnir veiðimenn geta einir skilað reikningum og aðeins þeir sem hafa undirritaðan samning við Vesturbyggð fá greitt fyrir refaskott. Reikningum skal skila fyrir 1. september 2024 og verður ekki greitt fyrir grenjavinnslu eftir þann tíma.

Skilavottorð frá þjónustumiðstöðvum um fjölda skotta er grundvöllur skilagjald

Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs

Geir Gestsson geir@vesturbyggd.is / 450 2300