Jónína leysir skólastjóra af
Ásdís Snót Guðmundsdóttir skólastjóri Patreksskóla verður í námsleyfi næsta vetur. Jónína Helga Sigurðardóttir Berg mun leysa hana af.
Skrifað: 18. apríl 2024
Jónína Helga er kennari við Patreksskóla og hefur gengt deildastjórastöðu undanfarið ár og verið staðgengill skólastjóra þar áður. Við bjóðum hana velkomna til starfa í þessu nýja hlutverki og óskum Ásdísi Snót velfarnaðar í náminu sem hún tekur sér fyrir hendur næsta vetur. Við hlökkum til að fá hana til baka að ári liðnu.