Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Lausar stöður við Tálkna­fjarð­ar­skóla

Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlist­ar­skóli undir einu þaki.


Skrifað: 2. maí 2024

Starfsauglýsingar

Í skólanum eru um 30 nemendur. Í skólanum fer fram öflugt og framsækið skólastarf þar sem lögð er áhersla á að koma til móts við hvern og einn nemanda. Skólinn er öflugur grænfánaskóli, heilsueflandi skóli og UNESCO skóli.  

Tálknafjörður er afar fallegur fjörður sem þekktur er fyrir einstaka veðurblíðu. Íbúarnir eru miklir íþróttaálfar og státar þorpið af glæsilegri íþróttamiðstöð með tækjasal, 25m sundlaug og fjöldann allan af skipulögðum íþróttatímum. Atvinnulíf er með miklum blóma og uppbygging fiskeldis og ferðaþjónustu á svæðinu býður upp á mikil tækifæri. 

Tálknafjarðarskóli leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmönnum með mikla þekkingu og áhuga á skólastarfi. Í Tálknafjarðarskóla eru lausar til umsóknar eftirfarandi stöður: 

Leikskólastig

Ein staða deildarstjóra leikskóla (100%) starfshlutfall)
Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í leikskóla
  • Reynsla af kennslu á leikskólastigi
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
  • Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum
  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni gagnvart skólaþróun
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

Leik- og grunnskólastig

Íþróttakennari (50% starfshlutfall, með möguleika á hærra hlutfalli með annarri kennslu)
Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
  • Reynsla af kennslu í skólaíþróttum á grunnskólastigi
  • Færni í að vinna í teymi og að fjölbreyttum verkefnum
  • Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum
  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni gagnvart skólaþróun
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

Grunnskólastig

Tvær stöður umsjónarkennara á mið- og elsta stigi grunnskóla (100% starfshlutfall)
Stundakennari í stærðfræði/raungreinum
Stundakennari í list- og verkgreinum

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
  • Reynsla af kennslu á grunnskólastigi
  • Færni í að vinna í teymi og að fjölbreyttum verkefnum
  • Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum
  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni gagnvart skólaþróun
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2024

Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá. 

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila.  

Umsókn sendist á skolastjori@talknafjordur.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.  

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Fáist ekki menntaður kennari í stöðu sem auglýst er, er heimilt að ráða annan í stöðuna og ræður hæfni umsækjanda þar um. Önnur uppeldismenntun og/eða reynsla er þá metin. Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2024. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Birna Friðbjört S. Hannesdóttir, skólastjóri, í síma 450 2520, netfang: skolastjori@talknafjordur.is