Hoppa yfir valmynd

Stóra upplestr­ar­keppni grunn­skól­anna 2024

Stóra upplestr­ar­keppni grunn­skól­anna á sunn­an­verðum Vest­fjörðum 2024 var haldin í gær, 18. apríl, við hátíð­lega athöfn í Bíldu­dals­kirkju. Upples­ar­arnir stóðu sig allir með stakri prýði.


Skrifað: 19. apríl 2024

Mikil spenna var í Bíldudalskirkju enda höfðu upplesararnir lagt mikið á sig við undirbúninginn. Þetta árið voru skáld keppninnar Björk Jakobsdóttir og Bragi Valdimar Skúlason. Í síðustu umferð keppninnar fluttu upplesarar ljóð að eigin vali.

Upplesararnir fengu allir viðurkenningarskjal, rós og bókina VeikindaDagur eftir Bergrúnu Írisi og Simma að gjöf.

Þá var Tónlistarskóli Vesturbyggðar með atriði, en hún Sigfríður Sól Guðmundsdóttir flutti lagið Over The Rainbow á píanó ásamt Helgu Gísladóttur.

Birta Ósmann Þórhallsdóttir, Freyja Ragnarsdóttir Pedersen og Magnús Óskar Hálfdánsson skipuðu dómnefndina. Dómarar réðu ráðum sínum í þónokkurn tíma en komust þó loks að sameiginlegri niðurstöðu. Í þriðja sæti var Ottó Hrafn Valdimarsson úr Bíldudalsskóla, í öðru sæti var Helena Margrét Bjarnadóttir úr Bíldudalsskóla og í fyrsta sæti var Sandra Lind Magnúsdóttir úr Patreksskóla. Þau hlutu öll gjafabréf frá Landsbankanum í verðlaun. Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.

Verðlaunahafarnir