Hoppa yfir valmynd

Vatn­eyr­arbúð

Vest­ur­byggð hefur unnið að endur­bótum á húsnæði Vatn­eyr­ar­búðar sem senn fer að ljúka. Við endur­gerð hússins var lögð mikil vinna í að halda í uppruna­legt útlit en á sama tíma á húsnæðið að uppfylla kröfur nútíma vinnu­að­stöðu.


Skrifað: 19. apríl 2024

Sögu Vatneyrarbúðar er gert hátt undir höfði og taka rýmin heiti fyrirtækja, skipa og fólks sem á stóran þátt í atvinnuuppbyggingu Patreksfjarðar. Munir úr gömlu Vatneyrarbúð prýða húsið að nýju og verður unnin bók þar sem má fræðast um þá muni sem sjá má í húsinu og sögu þeirra.

Í gegnum árin hafa komið fram ýmsar hugmyndir um nýtingu húsnæðisins en frá árinu 2019 hefur verið unnið að uppbyggingu þekkingaseturs og samvinnurými í Vatneyrarbúð. Fyrstu stofnanir sem taka til starfa í Vatneyrarbúðinni eru MAST, Umhverfisstofnun, Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Minjasafnið að Hnjóti og Náttúrustofa Vestfjarða með nýtt starf deildarstjóra fiskeldis og þegar eru einhver flutt inn.  Auk þess er unnið að samningi við umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið um starf sem verður staðsett í Vatneyrarbúð.

Þegar hefur verið rætt við fjölda stofnana og má gera ráð fyrir að störfum fjölgi enn frekar á árinu, enda er einn aðaltilgangur verkefnisins að skapa kjöraðstæður til nýsköpunar og auka fjölbreytileika starfa.

Vatneyrarbúð verður eign samfélagsins og þannig glæsilegur samkomustaður, þekkingar og umræðna. Viðburðir verða haldnir á vegum þekkingarsetursins en einnig býðst einstaklingum eða fyrirtækjum að leigja sér aðstöðu til lengri eða skemmri tíma eða halda þar einstaka fundi.

Vatneyrarbúð, þekkingarsetur, verður formlega opnað í maí.

Vatneyrabúð