Gefur þú sérstakan kost á þér í heima­stjórn?

Einstak­lingum sem hafa áhuga á því að sitja í heima­stjórn og vilja gefa sérstak­lega kost á sér til býðst að kynna sig og sín áherslumál í gegnum heima­síður sveit­ar­fé­lag­anna.

Fram­bjóð­endum er boðið að senda mynd af sér og stuttan kynn­ing­ar­texta að hámarki 200 orð á netfangið muggs­stofa@vest­ur­byggd.is. Þar þarf að koma fram fullt nafn og heim­il­is­fang fram­bjóð­anda. Kynn­ingar á fram­bjóð­endum verða birtar á heima­síðum Tálkna­fjarð­ar­hrepps og Vest­ur­byggðar. Kynn­ingar verða birtar jafnóðum og þær berast, tekið verður við kynn­ingum til föstu­dagsins 3. maí kl. 13:00.