Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi viðburður endaði fyrir 21 dögum síðan.

Sjöundá og Svart­fugl — Gengið með land­vörðum

  • laugardaginn 17. ágúst kl. 13:00–15:00

  • Tjaldsvæðið á Melanesi
    Sjá á korti

✨ Sjöundá og Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson ✨
Laugardaginn 17. ágúst mun landvörður leiða göngu að Sjöundá 🥾🥾
Gangan hefst við tjaldstæðið á Melanesi og verður gengið sem leið liggur að tóftum bæjarins.
Gangan er innblásin af sögunni Svartfugl, sem fjallar um atburðina á Sjöundá árið 1802. Við förum aftur í tímann og skoðum þann heim sem sagan sprettur uppúr. Gunnar sagði sjálfur að hann hefði ekki skrifað söguna eins og hún gerðist heldur eins og hún hefði getað gerst og þau orð verða höfð að leiðarljósi.
Landvörður leiðir gönguna og les vel valda kafla úr bókinni sem gefa innsýn í bæði lífið á Sjöundá og tilfinningalíf persónanna sem sagan hverfist um.
Vegalengd: 3 km
Tími: 1 og hálf til 2 klst
Búnaður: Nesti og kaffi á brúsa
Nánar um náttúruverndarsvæði á Vestfjörðum:
https://ust.is/…/natturuver…/fridlyst-svaedi/vestfirdir/
Skoða viðburð á Facebook