Athugið að þessi viðburður endaði fyrir 10 mánuðum síðan.
Tendrun jólatrés á Patreksfirði
miðvikudaginn 30. nóvember kl. 16:30–17:30
Friðþjófstorg
Sjá á korti
Íbúum Patreksfjarðar er boðið að koma og eiga notalega stund þegar kveikt verður á jólatrénu á Friðþjófstorgi þann 30. nóvember kl. 16:30.
Boðið verður upp á heitt kakó og piparkökur og dansað verður í kringum jólatréð. Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, mun kveikja á trénu við athöfnina. Að lokinni dagskrá mun Vesturbyggð bjóða bæjarbúum í Skjaldborgarbíó að sjá teiknimyndina Strange World kl. 17:30.
Öll eru velkomin!