Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi viðburður endaði fyrir 5 mánuðum síðan.

Valda í Skjalda

  • þriðjudaginn 13. febrúar kl. 10:00–11:30

  • Skjaldborgarbíó
    Sjá á korti

Þriðju­daginn 13. febrúar kl. 10 verður stutt­mynda­há­tíðin Valda í Skjalda haldin í Skjald­borg­ar­bíói.

Hátíðin er nýsköpunarverkefni sem nemendur á unglingastigi í Vesturbyggð standa sjálfir að og innblásturinn er sóttur í stuttmyndahátíðina Skjaldborg sem haldin er á Patró ár hvert. Þema hátíðarinnar er jafnrétti og hvað við getum gert til að stuðla að því. Hátíðin er orðin árleg og fer fram í febrúar á hverju ári.

Öllum er frjálst að koma og aðgangur er ókeypis.