Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

100% staða umsjón­ar­kennara á unglinga­stigi

Patreks­skóli er heild­stæður 10 bekkja grunn­skóli með 100 nemendum ásamt leik­skóla­deild. Þar starfar öflugur og metn­að­ar­fullur hópur fólks sem vinnur að vellíðan nemenda og að hver fái að stunda nám á eigin forsendum. Patreks­skóli vinnur með Uppbygg­ing­ar­stefnuna að leið­ar­ljósi og einkunn­arorð skólans eru jákvæðni, virðing og samvinna. Fjöl­breyttir kennslu­hættir og einstak­lings­miðað nám og vinna með styrk­leika nemenda er í fyrir­rúmi.

 


Skrifað: 5. október 2020

Starfsauglýsingar

Starfssvið

Umsjónarkennsla á unglingastigi með áherslu á íslensku, stærðfræði, náttúru- og samfélagsgreina.

    Menntunar og hæfniskröfur

    • Leyfisbréf til kennslu með sérstaka hæfni á grunnskólastigi
    • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
    • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
    • Faglegur metnaður
    • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
    • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
    • Reynsla af teymisvinnu kostur

    Umsóknarfrestur er til og með 19. október 2020

    Sveitarfélagið aðstoðar við flutning og við að útvega húsnæði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

    Frekari upplýsingar um störfin gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir. Umsóknir skulu berast á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is