Hoppa yfir valmynd

Ævin­týrin bíða þín í Vest­ur­byggð!

Verið velkomin í Vest­ur­byggð! Hér er öflugt atvinnulíf, fjöl­breytt þjón­usta og gott mannlíf.


Skrifað: 20. apríl 2021

Auglýsingar, Fréttir, Starfsauglýsingar

Góð þjónusta er í sveitarfélaginu, öflugt æskulýðsstarf, leikskólar, grunnskólar, frístund, íþróttasvæði, sundlaug, verslanir, sjúkrahús, verkstæði, vélsmiðjur, trésmíðaverkstæði, bíó, ferðaþjónusta og fleira.

Einstök náttúrufegurð prýðir Vesturbyggð og þar er ótal margt að sjá og upplifa. Náttúruperlur eins og Rauðisandur og Látrabjarg eru innan sveitarfélagsins. Möguleikar til útivistar, félagsstarfa, íþrótta og afþreyingar eru því fjölmargar. Vesturbyggð tekur vel á móti nýjum íbúum.

Hér fyrir neðan er hægt að fá frekari upplýsingar um fjölbreytt og spennandi störf í boði í fjölskylduvænu og nánu samfélagi í Vesturbyggð. Einnig er hægt að fá ýmsar upplýsingar fyrir nýja íbúa varðandi þjónustu sem er á svæðinu, hvað er í boði fyrir fjölskyldufólk og upplýsingar varðandi húsnæði og flutninga á svæðið.