Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Alþing­is­kosn­ingar 2021

Upplýs­ingar um kjör­fund, viðmið­un­ardag kjör­skrár og kosn­inga­rétt.


Skrifað: 7. september 2021

Kjörfundur fer fram laugardaginn 25. september 2021 á eftirtöldum stöðum:

  • Félagsheimili Patreksfjarðar, Aðalstræti 107, Patreksfirði, þar kjósa einstaklingar með lögheimili á Patreksfirði og í fyrrum Rauðasandshreppi. Kjördeildin opnar kl. 10:00
  • Baldurshagi, Tjarnarbraut 4, Bíldudal, þar kjósa einstaklingar með lögheimili á Bíldudal og í póstnúmeri 466. Kjördeildin opnar kl. 12:00
  • Birkimel, Krossholtum, Barðaströnd, þar kjósa einstaklingar með lögheimili á Barðaströnd. Kjördeildin opnar kl. 12:00

Kjörskrá liggur frammi í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði. Þjóðskrá Íslands hefur opnað fyrir rafrænan aðgang að kjörskrá á vefnum www.skra.is.

Viðmiðunardagur kjörskrár var 21. ágúst 2021.

Kosningarétt eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og sem skráðir eru með lögheimili hér á landi. Íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri og flutt hafa erlendis eiga kosningarétt í átta ár frá flutningnum. Eftir þann tíma þurfa þessir aðilar að sækja um að vera teknir á kjörskrá hjá Þjóðskrá Íslands. Ef viðkomandi er ekki með gilda umsókn, átta ár eða meira eru liðin frá flutningi og engin umsókn barst Þjóðskrá Íslands fyrir 1. desember 2020 er viðkomandi ekki á kjörskrá.

Nánari upplýsingar eru á vefnum www.kosning.is

Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér, svo sem með því að segja til sín og framvísa kennivottorði eða nafnskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar.

Kjörstjórn óskar eftir að kjósendur taki ekki með sér síma eða önnur ljósmyndatæki inn í kjörklefa þar sem það er óheimilt að ljósmynda kjörseðil og varðar sektum ef kjósandi sýnir af ásettu ráði hvernig hann kýs eða hefur kosið.

Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördag verður í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.

Yfirkjörstjórn í Vesturbyggð
Finnbjörn Bjarnason, formaður
Ólafur Steingrímsson
Rafn Hafliðason