Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Alþing­is­kosn­ingar 2021

Upplýs­ingar um kjör­fund, viðmið­un­ardag kjör­skrár og kosn­inga­rétt.

Kjör­fundur fer fram laug­ar­daginn 25. sept­ember 2021 á eftir­töldum stöðum:

  • Félags­heimili Patreks­fjarðar, Aðalstræti 107, Patreks­firði, þar kjósa einstak­lingar með lögheimili á Patreks­firði og í fyrrum Rauðasands­hreppi. Kjör­deildin opnar kl. 10:00
  • Bald­urs­hagi, Tjarn­ar­braut 4, Bíldudal, þar kjósa einstak­lingar með lögheimili á Bíldudal og í póst­númeri 466. Kjör­deildin opnar kl. 12:00
  • Birkimel, Kross­holtum, Barða­strönd, þar kjósa einstak­lingar með lögheimili á Barða­strönd. Kjör­deildin opnar kl. 12:00

Kjör­skrá liggur frammi í Ráðhúsi Vest­ur­byggðar, Aðalstræti 75, Patreks­firði. Þjóð­skrá Íslands hefur opnað fyrir rafrænan aðgang að kjör­skrá á vefnum www.skra.is.

Viðmið­un­ar­dagur kjör­skrár var 21. ágúst 2021.


Skrifað: 24. september 2021

Kosningarétt eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og sem skráðir eru með lögheimili hér á landi. Íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri og flutt hafa erlendis eiga kosningarétt í átta ár frá flutningnum. Eftir þann tíma þurfa þessir aðilar að sækja um að vera teknir á kjörskrá hjá Þjóðskrá Íslands. Ef viðkomandi er ekki með gilda umsókn, átta ár eða meira eru liðin frá flutningi og engin umsókn barst Þjóðskrá Íslands fyrir 1. desember 2020 er viðkomandi ekki á kjörskrá.

Nánari upplýsingar eru á vefnum www.kosning.is

Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér, svo sem með því að segja til sín og framvísa kennivottorði eða nafnskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar.

Kjörstjórn óskar eftir að kjósendur taki ekki með sér síma eða önnur ljósmyndatæki inn í kjörklefa þar sem það er óheimilt að ljósmynda kjörseðil og varðar sektum ef kjósandi sýnir af ásettu ráði hvernig hann kýs eða hefur kosið.

Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördag verður í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.

Athygli er vakin á því að kjósendur á Vestfjörðum sem eru í sóttkví eða einangrun vegna Covid-19 geta greitt atkvæði á kjördag á dvalarstað sínum eða á séstökum kjörstöðum þar sem atkvæðagreiðsla fer fram í lokaðri bifreið til að tryggja sóttvarnir. Atkvæðagreiðsla þessi fer fram á kjördag milli kl. 11 -12 á Patreksfirði, slökkvistöðinni, Þórsgötu 7. Kjósendur þurfa að senda umsókn til Sýslumannsins á Vestfjörðum í netfangið vestfirdir@syslumenn.is eða með öðrum tryggum hætti og skal umsókn hafa borist fyrir kl. 10 á kjördag.

Yfirkjörstjórn í Vesturbyggð

Finnbjörn Bjarnason, formaður
Ólafur Steingrímsson
Rafn Hafliðason