Arnarbakki 5 - grenndarkynning
Á 80. fundi skipulags- og umhverfisráðs Vesturbyggðar 14.1.2021 sl., var samþykkt að grenndarkynna byggingaráform í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skrifað: 15. janúar 2021
Óskað er eftir að fá að reisa 179 m2 parhúsi við Arnarbakka 5, Bíldudal. Svæðið er skilgreint sem íbúðarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi Vesturbyggðar.
Meðfylgjandi eru kynningargögn þar sem sjá má áformin á afstöðumynd og útlitsteikningum.
Uppdrættir eru einnig til sýnis í Ráðhúsi Vesturbyggðar að Aðalstræti 75 á Patreksfirði. Þá er hægt að nálgast gögnin hér að neðan.
Að lokinni kynningu er umsækjanda heimilt að senda inn byggingarteikningar og fær byggingarleyfi standist gögn reglugerð. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við áformin. Frestur til að senda athugasemdir er frá 15. janúar til og með 13. febrúar 2021.
Skila skal athugasemdum í Ráðhús Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði, eða rafrænt á vesturbyggd@vesturbyggd.is merkt „Arnarbakki 5“ .
Heimilt er að stytta tímabil grenndarkynningar hljótist undirritað samþykki íbúa fyrir áformunum, skv. 3. mgr., 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Ef frekari upplýsinga er óskað má hafa samband við Elfar Stein Karlsson, byggingarfulltrúa Vesturbyggðar á netfangið elfar@vesturbyggd.is eða í síma 849 7909.
Kynningarbréf fá íbúar að Arnarbakka 1, 3, 6, 7 og 8 og Grænabakka 2, 4, 6 og 8.
Virðingarfyllst