Hoppa yfir valmynd

Árshá­tíðir grunn­skól­anna 2024

Uppskeru­há­tíðir sköp­un­ar­lotu verða haldnar með árshátíð grunn­skól­anna fimmtu­daginn 21. mars.


Skrifað: 19. mars 2024

Auglýsingar

Árshátíð Patreksskóla verður haldin í félagsheimili Patreksfjarðar, húsið opnar með sýningu á sköpun nemenda klukkan 16:15 og sýning á sviði hefst kl. 16:45. Aðgöngu­miðinn kostar 1000 kr. fyrir full­orðna en frítt er fyrir börn. Foreldra­fé­lagið sér um kaffi­veit­ingar.

Árshátíð Bíldudalsskóla verður haldin í félagsheimilinu Baldurshaga, húsið opnar kl. 16:00 og sýning hefst kl. 16:30. Aðgangseyrir er 1.500 kr. fyrir fullorðna en ókeypis er fyrir leik- og grunnskólabörn. Kaffiveitingar verða í boði foreldrafélagsins. Nemendur mið- og unglingastigs munu selja skólablaðið Vorboðann á litlar 2.500 kr.

Öll hjartanlega velkomin.