Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Athuga­semdir við Áfanga­staða­áætlun Vest­fjarða

Nú á dögunum voru birt drög að endur­nýj­aðri Áfanga­staða­áætlun Vest­fjarða en fyrri áætlun var gefin út 2018. Áætl­unin er birt sem drög en hún á enn eftir að fá umfjöllun hjá sveit­ar­fé­lög­unum á Vest­fjörðum, en er það ferli í gangi núna.


Skrifað: 15. október 2020

Auglýsingar

Við vinnu áfangastaðaáætlunar 2018 var svæðinu skipt í þrennt; Strandir og Reykhóla, norðanverða Vestfirði og sunnanverða Vestfirði og voru lagðar fram aðgerðaráætlanir fyrir hvert svæði ásamt einni áætlun fyrir Vestfirði í heild. Við gerð aðgerðaráætlananna var fundað á hverju svæði en ekki innan hvers sveitarfélags og því má segja að það vantaði ákveðna dýpt í lista aðgerða. Það var því ákveðið við endurnýjun áætlunarinnar að funda með fulltrúum allra níu sveitarfélaganna sem og í hverjum þéttbýliskjarna, eða í 12 þéttbýliskjörnum í heildina.

Í áætluninni eru settar fram fjórar aðgerðaráætlanir, ein fyrir hvert svæði Vestfjarða og ein fyrir Vestfirði í heild. Jafntframt er í viðaukum settir fram sérstakir listar yfir hlaupa-, göngu- og hjólaleiðir sem og listi yfir áningarstaði sem lögð var áhersla á í vinnunni.

Vestfjarðastofa kallar nú eftir athugasemdum og er frestur til athugasemda til 15. nóvember 2020 og má senda ábendingarnar á diana@vestfirdir.is

Drög að áætluninni má finna hér.