Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Styrkir vegna náms­kostn­aðar eða verk­færa- og tækja­kaupa fatlaðs fólks

Byggða­samlag Vest­fjarða um málefni fatlaðs fólks vekur athygli á rétti fólks til að sækja um styrki skv. 25. grein laga nr. 37/2018 um þjón­ustu við fatlað fólk með langvar­andi stuðn­ings­þarfir.


Skrifað: 12. nóvember 2021

Auglýsingar

Byggðasamlaginu er heimilt að veita  styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda telst námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing.  Einnig  er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk  til verkfæra og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða  endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðu fólki að skapa sér atvinnu.

Umsóknafrestur er til 11. desember 2021 og skulu umsóknir berast til félagsþjónustu lögheimilisveitarfélags, umsóknaeyðublað eru að finna hér fyrir neðan. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu BsVest.