Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.
Auglýst eftir starfsmanni á Bíldudal
Um er að ræða 93% starf sem er samsett af eftirfarandi verkefnum:
- Umsjónamaður Félagsheimilisins Baldurshaga
- Starfsmaður í Frístund í Bíldudalsskóla
- Heimaþjónusta fyrir aldraða
Skrifað: 1. febrúar 2021
Í starfinu felst meðal annars:
- Að hafa umsjón með útleigu á Baldurshaga, sjá um þrif og svara síma ásamt meðferð og samþykkt reikninga
- Skipulag, uppröðun og framkvæmd vegna samkomuhalds í samvinnu við þjónustumiðstöð
- Vera leiðbeinandi í frístund í Bíldudalsskóla sem er starfrækt eftir skóla til kl. 16:00 og er staðsett í skólabyggingunni
- Starfsmaður frístundar sér m.a. um að fylgja börnum í og úr íþróttaskólanum, skipuleggja dagskrá sem unnið er eftir á daginn, s.s. skipulögð útivera og ýmis konar tómstundarstarf innanhúss, sem og að undirbúa og sjá um létta hressingu fyrir börnin
- Heimaþjónusta fyrir aldraða sem fellst í að fara á heimili eldri borgara og sinna almennum heimilisþrifum
Hæfniskröfur
- Stundvísi, snyrtimennska og reglusemi
- Frumkvæði í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2021
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum fólk af öllum kynjum að sækja um.
Frekari upplýsingar veita:
Signý Sverrisdóttir skólastjóri Bíldudalsskóla í síma 450 2333, netfang signy@vesturbyggd.is
Geir Gestsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs í síma 450 2300, netfang geir@vesturbyggd.is