Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Styrkir úr húsa­frið­un­ar­sjóði 2021

Vest­ur­byggð vekur athygli á því að auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki úr húsa­frið­un­ar­sjóði vegna ársins 2021.


Skrifað: 21. október 2020

Fréttir

Úr húsafriðunarsjóði eru m.a. veittir styrkir til:

  • Viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum, og öðrum húsum og mannvirkjum, sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi
  • Byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningu húsa og mannvirkja, og miðlun upplýsinga um þær

Umsóknir eru metnar m.a. með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildis fyrir varðveislu byggingararfleifðarinnar.

Nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna á vef Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is.

Umsóknareyðublöð má finna hér: http://www.minjastofnun.is/um-stofnunina/eydublod/

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2020. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun styrkja.

Hlutverk húsafriðunarsjóðs er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra húsa og mannvirkja, sbr. reglur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði nr. 577/2016. Veittir verða styrkir úr sjóðnum til:

  • Viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum, og öðrum húsum og mannvirkjum, sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi.
  • Byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningu húsa og mannvirkja, og miðlun upplýsinga um þær
  • Sveitarfélaga til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð, í samræmi við ákvæði laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016 um verndarsvæði í byggð og til verkefna innan verndarsvæða í byggð.

Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af hendi leyst og í samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á leiðbeiningarit um verndarsvæði í byggð og um viðhald og endurbætur friðaðra og varðveisluverðra húsa sem finna má á vef Minjastofnunar Íslands (undir Gagnasafn). Í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni er veitt endurgjaldslaus ráðgjöf um gerð styrkumsókna og viðhald og viðgerðir á gömlum húsum (sjá nánar á heimasíðu safnsins www.borgarsogusafn.is).