Auglýst er öðru sinni eftir aðilum til grenjaleita og grenjavinnslu
Vesturbyggð auglýsir öðru sinni eftir aðilum til grenjaleita og grenjavinnslu í Vesturbyggð.
Óskað er eftir umsækjendum fyrir eitt svæði, skv. gömlu hreppaskiptingunni.
- Barðastrandarhreppur
Til greina kemur að ráða fleiri en einn aðila innan hvers svæðis og skal tekið fram í umsókn um hvaða svæði er sótt. Ákvörðun um ráðningu verður tekin eftir að umsóknarfresti lýkur og miðað er við að umsækjendur hefji störf skv. samkomulagi.
Vesturbyggð vekur athygli á því að ráðnir veiðimenn geta einir skilað reikningum og aðeins þeir sem hafa undirritaðan samning við Vesturbyggð fá greitt fyrir refaskott.
Reikningum skal skila fyrir 1. september 2022 og verður ekki greitt fyrir grenjavinnslu eftir það.
Minnt er á að viðkomandi þarf að hafa gilt skotvopnaleyfi og veiðikort sem framvísa þarf við samning. Tekið er við umsóknum til 30. maí næstkomandi.
Umsóknir berist á geir@vesturbyggd.is eða á vesturbyggd@vesturbyggd.is merkt grenjavinnsla 2022.