Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Bæjarlistamaður Vesturbyggðar 2022
Vesturbyggð óskar eftir tilnefningum til Bæjarlistamanns Vesturbyggðar 2022 en verðlaunin verða afhent þann 17. júní n.k.
Allir geta tilnefnt listamann. Athugið að tilnefna má listamenn úr öllum listgreinum, hvort heldur sem er myndlist, ritlist, leiklist, dans, hönnun o.s.frv.
Tilnefningar og ábendingar sendist í tölvupósti á muggsstofa@vesturbyggd.is í síðasta lagi þriðjudaginn 31. maí 2022.