Baldurshagi - þrif eftir skólamötuneyti
Vesturbyggð auglýsir eftir einstaklingi til að sjá um þrif í félagsheimilinu Baldurshaga á Bíldudal.
Skrifað: 10. október 2023
Um er að ræða þrif alla virka daga eftir skólamötuneytið, u.þ.b. 8 tímar á viku. Einnig eru í boði afleysingar og aukaþrif. Greiddur er yfirvinnutaxti.
Nánari upplýsingar um laun og vinnutíma hjá Erlu Rún forstöðumanni Baldurshaga í síma 866 6322 eða netfangi Baldurshagi@vesturbyggd.is