Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Bíldudalshöfn: Endurbygging Hafskipabryggju
Hafnasjóður Vesturbyggðar óskar eftir tilboðum í endurbyggingu og lengingu Hafskipabryggju.
Útboðið nefnist: Bíldudalshöfn: Endurbygging og lenging Hafskipabryggju 2019
Skrifað: 29. október 2019
Helstu magntölur:
- Upptekt á grjóti, um 1.400 m³
- Reka niður 117 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ24-700, AZ28-700 og AZ13-700
- Ganga frá stagbita og stögum
- Steypa 25 akkerissplötur
- Steypa um 164 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum
- Jarðvinna, fylla upp fyrir innan þil um 12.600 m³.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. ágúst 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 28. október 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. nóvember 2019.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.