Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Sérkennari og leið­bein­andi í frístund á Bíldudal

Bíldu­dals­skóli er samrekinn leik- og grunn­skóli. Í grunnskól­anum eru 23 nemendur og í leik­skól­anum eru 10 en fer fjölg­andi.  Í Bíldu­dals­skóla er Uppbygg­ing­ar­stefnan höfð að leið­ar­ljósi og einkunn­arorð skólans eru samskipti, samvinna og sköpun. Fjöl­breyttir kennslu­hættir, einstak­lings­miðað nám, samþætting náms­greina þar sem grunn­þættir mennt­unar endur­speglast í skóla­starfi. 


Skrifað: 7. október 2020

Starfsauglýsingar

Í Bíldudalsskóla eru eftirfarandi stöður lausar til umsóknar:

Sérkennari 

80-100% staða sérkennara. Starfið felst í að halda utan um öll sérkennslumál leik-og grunnskólans og vera kennurum og öðrum starfsmönnum til stuðnings varðandi nám og kennslu viðkomandi barna. 

Menntunar og hæfniskröfur 

  • Leyfisbréf til kennslu í leik- og/eða grunnskóla
  • Menntun á sviði sérkennslu eða önnur sambærileg menntun
  • Reynsla af kennslu á báðum skólastigum æskileg
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og færni í samskiptum við nemendur
  • Frumkvæði í starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Reynsla af teymisvinnu. 

Leiðbeinandi í frístund 

32% staða leiðbeinanda í frístundStarfið felst í að leiðbeina börnum í leik og starfi, aðstoða við skipulag frístundastarfs, samvinna við börn, starfsfólk skólansforeldra o.fl. 

Hæfniskröfur

  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Jákvæðir og góðir samstarfshæfileikar

Umsóknarfrestur er til og með 20. október 2020

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá. 

Allar nánari upplýsingar gefur Signý Sverrisdóttir skólastjóri í síma 450 2333 eða 849 8976Senda skal umsókn á netfangið signy@vesturbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest. 

Bíldudalsskóli skólastjóri

LRR

Lilja Rut Rúnarsdóttir liljarut@vesturbyggd.is / 450 2333