Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Bíldu­dals­skóli auglýsir tíma­bundna lausa stöðu

Bíldu­dals­skóli er samrekinn leik- og grunn­skóli. Í grunn­skól­anum eru 23 nemendur og í leik­skól­anum eru 11 en fer fjölg­andi.


Skrifað: 2. nóvember 2020

Starfsauglýsingar

Í Bíldudalsskóla er Uppbyggingarstefnan höfð að leiðarljósi og einkunnarorð skólans eru samskipti, samvinna og sköpun. Fjölbreyttir kennsluhættir, einstaklingsmiðað nám, samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi.

Í Bíldudalsskóla eru laus til umsóknar eftirfarandi staða út skólaárið: Staða stundakennara (23% starfshlutfall). Stærðfræðikennsla á mið- og unglingastigi.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
  • Metnaður til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
  • Metnaður til að starfa í teymi
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Hefur hreint sakarvottorð

Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember 2020

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara. Allar nánari upplýsingar gefur Signý Sverrisdóttir skólastjóri í síma 450 2333 eða 849 8976. Senda skal umsókn á netfangið signy@vesturbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest.

Bíldudalsskóli skólastjóri

LRR

Lilja Rut Rúnarsdóttir liljarut@vesturbyggd.is / 450 2333