Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Bíldu­dals­skóli auglýsir tíma­bundnar lausar stöður

Bíldu­dals­skóli er samrekinn leik- og grunn­skóli. Í grunn­skól­anum eru 29 nemendur og í leik­skól­anum eru 9 en fer fjölg­andi.  Um er að ræða tíma­bundnar stöður út núver­andi skólaár eða til og með 29. maí 2020.


Skrifað: 14. janúar 2020

Starfsauglýsingar

Staða stuðningsfulltrúa (68% starf). Fjölbreytt og skemmtileg störf sem fela í sér almennan stuðning. Möguleiki á áframhaldandi starfi út skólaárið.

Hæfniskröfur

  • Metnaður til að vinna með fjölbreytilegan hóp nemenda
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Hefur hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar 2020

Ráðið verður í stöðurnar frá og með 27. janúar 2020.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum.

Upplýsingar gefur Signý Sverrisdóttir skólastjóri í síma 450-2333 eða 8498976

Senda skal umsókn á netfangið signy@vesturbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest.

Staða forfallakennara. Fjölbreytt og skemmtilegt starf sem felst í almennri kennslu á öllum stigum í forföllum.

Æskilegar menntunar- og hæfniskröfur

Almenn kennsla á yngsta,- mið- og unglingastigi í forföllum

Helstu námsgreinar í forfallakennslu:
Íslenska og erlend tungumál á mið- og unglingastigi
Stærðfræði á mið- og unglingastigi.

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
  • Metnaður til að vinna með fjölbreytilegan hóp nemenda
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Hefur hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar 2020

Ráðið verður í stöðurnar frá og með 27. janúar 2020.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.

Upplýsingar gefur Signý Sverrisdóttir skólastjóri í síma 450-2333 eða 8498976

Senda skal umsókn á netfangið signy@vesturbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest.

Bíldudalsskóli skólastjóri

LRR

Lilja Rut Rúnarsdóttir liljarut@vesturbyggd.is / 450 2333