Hoppa yfir valmynd

Breyting á deili­skipu­lagi Lang­holt-Kross­holt


Skrifað: 16. maí 2023

Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti á fundi sínum 15. maí 2023 óverulega breytingu á deiliskipulagi Langholts-Krossholts á Barðastönd. Breytingin fólst í breytingu á afmörkun byggingareits á lóð með landnúmerinu L221595 og breyting á byggingarmagni um 28 m2. Breytingin var grenndarkynnt með athugasemdafrest til 3. apríl 2023 .

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og öðlast þegar gildi.

Skipulagsfulltrúi

Óskar Örn Gunnarsson
oskar@landmotun.is / 575 5300