Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Breyt­ingar á aðal­skipu­lagi og deili­skipu­lagi

Breyting á Aðal­skipu­lagi Vest­ur­byggðar 2006-2018 – Örlygs­hafn­ar­vegur og breyting á deili­skipu­lagi Örlygs­hafn­ar­vegar


Skrifað: 18. desember 2020

Skipulög í auglýsingu

Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti 25. nóvember 2020 breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 vegna Örlygshafnarvegar ásamt breytingu á deiliskipulagi Látrabjargs um sama efni. Tillögurnar voru auglýstar skv. 1. mgr. 31. og 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 7. september til 19. október 2020. Engar athugasemdir bárust en umsagnir leiddu til efnislegra breytinga á tillögunum sem fólust einna helst í smávægilegum lagfæringum á texta í greinargerð með báðum tillögum. Engar breytingar á uppdráttum.

Tillögurnar hafa verið sendar Skipulagsstofnun til staðfestingar og samþykktar.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um aðal- og deiliskipulagið og niðurstöðu bæjarstjórnar geta snúið sér til skipulags- eða byggingarfulltrúa Vesturbyggðar.

Skipulagsfulltrúi

Óskar Örn Gunnarsson
oskar@landmotun.is / 575 5300