Hoppa yfir valmynd

Breyt­ingar á sorp­gjöldum

Við álagn­ingu gjalda vegna meðhöndl­unar úrgangs á árinu 2023 voru innleiddar ýmsar breyt­ingar á gjald­skrá Vest­ur­byggðar svo gjald­skráin tæki mið af breyt­ingum á lögum um meðhöndlun úrgangs. Sveit­ar­fé­lögum er óheimilt að greiða niður meðhöndlun úrgangs og ber að innheimta sem næst raunkostnaði. 


Skrifað: 11. janúar 2024

Fréttir

Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur samþykkt breytingar á gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs sem miða að því að auka sveigjanleika og möguleika íbúa á að lækka kostnað vegna meðhöndlunar úrgangs.  

Helstu breytingar sem samþykktar hafa verið eru: 

  • Íbúum gefst kostur á að sækja um minna ílát fyrir almennt sorp, 120l í stað 240l ílát. 
  • Íbúar í fjölbýlishúsum, rað- og parhúsum gefst kostur á að sameinast um sorpílát.
  • Íbúar með heimajarðgerð geta sótt um að fá felld niður gjöld á íláti fyrir lífrænan úrgang gegn því að sýna fram á aðstöðu til heimajarðgerðar.  

Íbúar geta jafnframt sótt  um aukatunnu fyrir endurvinnsluefni. Kostnaður við aukatunnu fyrir endurvinnsluefni (pappa og plast) er 80% af kostnaði við endurvinnslutunnuna sem er við hvert heimili. 

Þær breytingar sem gerðar voru á sorpílátum á árinu 2022 haldast inni á milli ára að undanskildu undanþágu frá því að vera með tunnu fyrir lífrænan úrgang, um það þarf að sækja ár hvert. 

Allar umsóknir um breytingar þurfa að berast skrifstofu Vesturbyggðar ekki síðar en 24. janúar 2024 á netfangið innheimta@vesturbyggd.is áður en vinna við álagningu fasteignagjalda líkur. Berist umsókn eftir þann tíma verður innheimt breytingargjald kr. 4.025 af viðkomandi fasteign. 

Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við skrifstofu Vesturbyggðar í síma 450-2300 eða  senda fyrirspurnir á netfangið innheimta@vesturbyggd.is 

Gjaldskrá vegna meðhöndlunar úrgangs má nálgast hér.